|
26.1.2012 09:13
Hestadagar 2012
Hestadagar í Reykjavík er samvinnuverkefni LH, Höfuðborgarstofu, Íslandsstofu, Icelandair Group og hestamannafélaganna á stórhöfuðborgarsvæðinu og verða haldnir dagana 29. mars – 1. apríl næstkomandi. Dagskráin verður með fjölbreyttu sniði þetta árið. Fimmtudag og föstudag verður farið í reiðtúra, borðuð kjötsúpa, horft á tískusýningu, hrossaræktarbú heimsótt og horft á flotta gæðinga á lokakvöldi Meistaradeildar í hestaíþróttum í Ölfushöll. Eins og í fyrra verður farin skrúðreið á laugardeginum 31. mars og að þessu sinni verður farinn hringur í miðbænum. Í ráðhúsi Reykjavíkur verður eitthvað hestatengt í boði allan daginn, söngur, fræðsla og gaman. Um kvöldið endum við svo á að horfa á flottustu töltara landsins á skautasvellinu í Laugardal: „Ístölt – þeir allra sterkustu“. Sunnudagurinn er tileinkaður æskunni. Sýningin Æskan og hesturinn er fjölskylduhátíð í Reiðhöllinni í Víðidal sem öll hestamannafélögin á stórhöfuðborgarsvæðinu standa að. Haldnar verða tvær sýningar á sunnudeginum 1.apríl. Sýning þessi hefur alltaf verið gríðarlega vinsæl og þar má sjá framtíðarknapa Íslands leika listir sínar með fákum sínum. Endanleg dagskrá og nánari upplýsingar um Hestadaga í Reykjavík verður birt á næstu dögum inni á www.icelandichorsefestival.is Viðburður sem engin áhugamaður um íslenska hestinn ætti að missa af! |






