|
Reiðskóli Mána 2011
Í sumar verða haldin reiðnámskeið á Mánagrund fyrir börn og unglinga,
7 ára og eldri.
Upplýsingar og skráning:
Sigurlaug Anna sími: 891-8757
Búnaður:
Börnin fá allan almennan búnað tengdan útreiðum, ss, reiðhjálma, reiðtygi o.fl.. Mikilvægt er að klæðanaður sé í samræmi við veður. - Auðveldara er að fara úr hlífðarfötum en að sækja þau langar leiðir. - Góð aðstaða er við Mánagrund, bæði innanhúss og utan.
KENNSLA:
Börnunum er kennd almenn umgengni við hestinn, hvernig hægt er að nálgast hann og hvað eigi að varast. Þau læra að treysta hestinum. Þannig verða þau öruggari á baki. Lögð er áhersla á að byggja upp sjálfstraust nemenda. Reiknað er með einum hesti fyrir hvert barn.
Tekin eru fyrir atriði eins og áseta, taumhald, nöfn tengd reiðtygjum og umhirðu reiðtygja. Ýmsir hlutar líkamsbyggingar hestsins eru skoðaðir. Þá er nemendum gerð grein fyrir skilningarvitum hestsins t.d. sjón, heyrn og tilfinningu.
Kennslan er einstaklingsmiðuð, þar sem áhersla er lögð á færni hvers einstaklings. Nemendum er skipt í hópa miðað við kunnáttu og reynslu. Þá miðast kennsla hvers hóps við að sem flestir í hópnum fái góða þjálfun.
Markmiðið er að það sé skemmtilegt að læra og allir fái að njóta sín. Þeir sem hafa náð ákveðinni færni fara í leiki, leysa þrautir. Lengra komnir nemendur fá viðbótarnámsefni.
SKIPULAG NÁMSKEIÐA:
Bæði eins og tveggja vikna námskeið eru í boði. (Sjá námskeiðsáætlun hér að neðan.)
Kennt er annað hvort fyrir hádegi eða eftir hádegi. þ.e. kl 10:00 – 12:00
og 13:00 – 15:00(ekki er mögulegt að breyta, nema undir sérstökum kringumstæðum)
ATH.Bóka þarf í tíma. Nemendafjöldi í hverju námskeiði er takmarkaður (miðast við fjölda hesta). Sum námskeið fyllast fyrr en önnur.
Námskeiðsáætlun*:
|
Timabil
|
Lengd námskeiðs
|
Athugasemdir
|
|
6 júni – 16 júni
|
2. vikur**f.h.
2. vikur**e.h.
8. dagar
|
Frí mán 13 og föstud
17 .júní.
Verð 20.000,-
|
|
20. júni – 30. juni
|
2 vikur** f.h.
2 vikur **e.h.
9.dagar
|
Verð 22.500,-
|
|
4. júlí – 15. júlí
|
2.vikur f.h.
2.vikur e.h
10. dagar
|
Verð 25.000,-
|
|
18. júlí – 29. júlí
|
2. vikur f.h.
2.vikur e.h.
10.dagar
|
Verð 25.000,-
|
|
2.ágúst – 6.ágúst
|
1. vikur** f.h.
1.vikur **e.h.
5.dagar
|
Kennt laug 6 ágúst
Verð 13.000,-
|
Þótt upp séu sett tveggja vikna námskeið er möguleiki að kaupa eina viku ef það hentar betur.
Verð: vikunámskeið 13.000,- kr. 2 vikur 25.000,-kr. Systkynaafsláttur er veittur 10%.
Ákveðinn sveigjanleiki er fyrir hendi. Áskilinn réttur til breytinga miðað við þáttöku og aðrar aðstæður.
**Til greina kemur að hafa 2ja vikan námskeið fh. og tvö vikunámskeið eh. Fer eftir þáttöku. Nánari upplýsingar hjá Sigurlaugu Önnu í síma 8918757.
|